Gagnastefna

Hvaða máli skiptir gagnastefna?

Hlutverk gagnastefnu er að leggja línur með áherslur við uppbyggingu á gagnaskema, hvaða stóru þarfir eru til staðar sem krefjast ákveðinna eiginleika í gagnaskema og hvernig skal varðveislu gagna vera háttað.

Gagnastefna þarf að svara þessu og hún þarf að vera þess eðlis að gögnin eiga að geta búið til það virði sem gagnaeigandinn þarf á að halda.

Uppbygging og flækjustig í gagnaskema skiptir líka máli. Hvort á að horfa á mikið niðurbröt á gögnum, mega gögnin vera varðveitt á ákveðnu formati, þurfa gögnin að geta staðið sértæk eða þarf að taka sérstakt tillit til rekjanleika gagna.

Mikilvægt er að gagnastefna sé nægilega ítarleg til að hún varpi ljósi á högun í útfærslu gagnaskema og þó nægilega opin til að sveigjanleiki sé til staðar.

Gagnastefna þarf að vera til staðar til að tryggja að útfærslur á gagnaskema séu í samræmi frá því þróun hefst og meðan á öllum líftíma þess stendur.

Gagnastefna sérsmíðaðra kerfa er sérstaklega mikilvæg ef viðkomandi kerfi er innan opinberrar stofnunar eða sveitarfélags þar sem um þau gögn gilda lög Þjóðskjalasafns Íslands.

Next
Next

Að bera virðingu fyrir fortíðinni