Fyrirtækið

Júlía Pálmadóttir Sighvats stofnaði Sighvats sem er ráðgjafafyrirtæki sem einblínir á flókin upplýsingatækniverkefni hjá stærri stofnunum og fyrirtækjum og hefur skýrt leiðarljós í þjónustu við viðskiptavin að vandamál séu leyst.

Júlía hefur leitt tæknilegar umbreytingar í meira en tvo áratugi og hefur mikla reynslu bæði sem stjórnandi, verkefnastjóri, greinandi og arkitekt. Menntun hennar nær yfir tölvunarfræði, verkefnastjórnun, jákvæða sálfræði og stjórnendamarkþjálfun. Með tæknilegan bakgrunn og hæfni til að vinna með ólíkum einstaklingum nær hún árangri í þeim störfum sem hún kemur að.

Hún er meginráðgjafi hjá Sighvats og fyrirtækið hefur einnig fleiri sérfræðinga á sínum vegum.

Sighvats einblínir á að koma viðskiptavinum áfram, sama hvar þeir eru staddir.

Þjónusta sem fyrirtækið veitir felur meðal annars í sér

  • verkefnastýring við útleiðingu á legacy kerfum,

  • arkitektúr fyrir sérskrifuð kerfi,

  • skipulag vinnu og stýring á þróunarteymi,

  • gerð vegvísis fyrir umbreytingu á tæknilegu umhverfi út frá stefnumótun,

  • stjórnun upplýsingatækni – ákvörðunartaka, forgangsröðun verkefna og mannauðs,

  • gagnastefna, gagnavarðveisla og strategía við gagnaflutning,

  • rafræn skjalavarsla hjá ríki og sveitarfélögum,

  • framkvæmd stefnu í kjölfar stefnumótunar.

Sighvats einblínir á að upplýsingatækniumhverfi henti viðkomandi fyrirtæki/stofnun og að horft sé til virðisins sem tæknin skapar.

Staðreyndin er sú að það er ekki hægt að gera allt og forgangsröðun er eitt mikilvægasta verkfærið til að komast áfram ásamt skýrri stefnu. Forgangsröðun krefst ákvörðunartöku og sá þáttur er oft á tíðum það sem hindrar framgang.

Júlía hefur áhuga á öllu sem er öðruvísi og flóknara en virðist í fyrstu og það er alltaf í boði að taka samtal án frekari skuldbindinga.

Hafa samband

Sendu mér línu gegnum formið eða á netfangið julia@sighvats.is og við finnum tíma.