Þjónusta

Ráðgjöf

Þjónusta er veitt í formi vinnufunda og minni greininga eða samantektar.

Í markvissum vinnufundum greinum við stöðuna, spyrjum gagnrýnna spurninga og finnum leiðina áfram.

Dæmi um efnistök í samtali

  • Stór verkefni framundan og óljóst hvar á að byrja?

  • Er búið að gera stefnumótun og nú á að taka fyrstu skref í átt að framkvæmd stefnu?

  • Útleiðing á kerfi - hvað með gögnin?

    Undirbúningur og miðlun verkefna til þróunarteyma, innanhúss eða hjá verktaka

  • Forgangsröðun verka hjá þróunarteymi, til að tryggja framgang í hugbúnaðarþróun

Unnið eftir tímataxta og tímafjöldi er áætlaður fyrirfram.

Skilgreind afurð

Við skilgreinum afurðir og kostnaðarmetum fyrirfram, svo þú veist nákvæmlega hvað er afhent, hver kostnaðurinn er og hvenær afhending fer fram.

Dæmi um afmarkað verk og afurðir

  • Gerð vegvísis út frá tæknistefnu (technology roadmap)

  • Viðskiptalegur arkitektúr kerfa (enterprise architectur/business architecture)

  • Gerð verkáætlunar og skilgreining á helstu vörðum fyrir framkvæmd á stefnu

Fast verð er skilgreint út frá umfangi vinnu.

Stærri verk / Langtímasamstarf

Þegar verkefnið krefst stýringu daglega eða vikulega yfir langar tíma. Við semjum um hlutfall og tímataxta eftir eðli og umfangi aðkomu.

Ég verð hluti af teyminu þínu.

Dæmi

  • Greining og teikning á viðskiptaferlum fyrir ný kerfi, skilgreining á tæknilegum kröfum fyrir virkni og gagnahögun,

  • Greining og hönnun á viðskiptalegum arkitektúr (enterprise architecture/business architecture) fyrir bæði sérsmíðuð kerfi og aðlöguð stöðluð kerfi

  • Verkstýring á agile þróunarteymum fyrir hönd viðskiptavinar, þar fer forgangsröðun verkefna á sprettum fram, skilgreining á vinnu fyrir hverja spretti og skil á framvindu fyrir stjórnendur.

  • Verkefnastýring á mörgum samtengdum verkefnum samtímis (programme management)

Unnið út frá umsömdum tímataxta og umfangi yfir samningstíma.