Að bera virðingu fyrir fortíðinni

Við breytingar á tækniumhverfi í fyrirtæki, hversu einfaldar eða flóknar sem þær eru, þá er mikilvægt að bera virðingu fyrir þeirri lausn sem er verið að útleiða.

Það er mikilvægt að átta sig á því af hverju tæknilega umhverfið er komið á þann stað sem það er, bæði það sem er jákvætt og það sem má betur fara.

Það er freistandi að nálgast breytingar á tækniumhverfi með nokkurs konar töfrasprota, þegar honum er veifað sem framkallar nýjar lausnir og uppfært umhverfi þá er einhvern veginn sjálfgefið að mörg uppsöfnuð vandamál verða leyst.

Sú er því miður ekki raunin.

Að átta sig á því að sagan gefur okkur mikilvægt veganesti fyrir umbreytingu er mikilvægt því það getur aukið líkur á velheppnaðri innleiðingu á nýrri lausn.

Okkur er tamt að horfa eingöngu á aðstæðurnar sem eru í dag. En við gleymum að aðstæðurnar hafa bæði komið út frá góðum ákvörðunum og verklagi sem virkar, og einnig út frá síðri ákvörðunum og verklagi sem virkar ekki.

Góðar ákvarðanir í fortíðinni og það sem er að virka getur verið lykilþáttur í því að ná fram jákvæðri upplifun fyrir starfsmenn í nýjum lausnum. Það sem er að virka þarf að virka áfram.

Við gleymum oft á tíðum að horfa á það sem virkar, en einblínum á það sem virkar ekki og reynum af öllum mætti að leysa það. Það er mun erfiðara að ná hraðri innleiðingu nýrra lausna þegar það sem var ánægja með vantar, þrátt fyrir að búið sé að leysa einhver vandamál sem voru áður til staðar.

Berum virðingu fyrir fortíðinni því hún getur hjálpað okkur að ná árangri í dag án þess þó að láta ákvarðanir fortíðarinnar stýra framtíðinni.

Next
Next

Pistill II