Júlía

Í meira en tvo áratugi hefur Júlía leitt tæknilegar umbreytingar — verkefni þar sem gömul kerfi þurfa að víkja, þar sem margir hagsmunaaðilar koma að og geta dregið verkefnin í ólíkar áttir og þar sem leiðin áfram er ekki alltaf augljós.

Henni líður best í flóknum tæknilegum verkefnum. Verkefnum þar sem viðskiptalegar þarfir setja kröfu á að tæknileg lausn uppfylli bæði skilyrt verklag, sjálfvirkni, nýtingu gervigreindar ásamt því að uppfylla lagalegar þarfir eins og rekjanleika og réttmæti gagna og rafræna varðveislu gagna.

Útleiðing á arfleifðarkerfum (legacy systems) bæði innan einkageirans og innan hins opinbera er sérhæfni hennar og víðtæk reynsla sem spannar verkefnastjórnun, arkitektúr og stjórnunarstörf gerir henni kleift að vinna árangursríkt á móti ólíkum hópum hagsmunaaðila.

Þar sem innleiðingar hafa farið úrskeiðis og sami vandinn kemur upp aftur og aftur, þar sem stofnanir og fyrirtæki vita að eitthvað þarf að breytast — en vita ekki hvar á að byrja. Þá kemur hún inn í með kunnáttu á því hvernig hægt er að komast áfram.

Júlía hefur einnig komið inn í verkefni sem lausnaarkitekt og breytingastjóri. Hún býr til skýra mynd af því hvar fyrirtækið er statt, skilgreinir hvert það vill fara og setur upp vegvísinn þangað. Hún tekur erfiðu samtölin, spyr óþægilegu spurninganna og forgangsraðar til að tryggja að árangur náist.

Menntun hennar spannar tölvunarfræði, verkefnastjórnun, stjórnendamarkþjálfun og jákvæða sálfræði. Þessi fjölbreytni er ekki tilviljun — hún er forsenda þess að Júlía getur unnið á öllum stigum samtímis. Hún greinir þarfir og teiknar upp ferla með starfsfólki á vettvangi, hannar lausnaarkitektúr og skilgreinir tæknilega vinnu fyrir þróunarteymi, sér um umfangsmat og birgjastýringu og skilar stjórnendum skýrri mynd af stöðu og vegvísi. Þegar allir hlutar myndarinnar eru í sömu höndum tapast minna í þýðingu á milli — og árangurinn kemur fyrr.

Vertu í sambandi og við tökum samtal yfir kaffi-/tebolla


sighvats@sighvats.is