Persónuverndarstefna - Sighvats

Síðast uppfærð: 9. ágúst 2026

Þessi vefsíða er rekin af Sighvats (kt. [kennitala], [heimilisfang]). Við leggjum áherslu á að vernda persónuupplýsingar þeirra sem heimsækja síðuna.

1. Hvaða upplýsingum er safnað
Við söfnum ekki persónuupplýsingum sjálfkrafa og höldum engan póstlista. Einu upplýsingarnar sem berast eru þær sem þú sendir sjálf/ur í gegnum "Hafa samband" formið — nafn, netfang og skilaboð.

2. Tilgangur vinnslu
Upplýsingar úr hafa samband forminu eru eingöngu notaðar til að svara fyrirspurnum. Þær eru ekki notaðar í markaðssetningu, ekki seldar og ekki deilt með þriðja aðila.

3. Lagagrundvöllur
Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum (svara fyrirspurnum) skv. 6. gr. (1)(f) reglugerðar ESB 2016/679, sbr. persónuverndarlög nr. 90/2018.

4. Varðveislutími
Upplýsingum úr forminu er eytt þegar erindi er afgreitt, nema lög eða lögmætir hagsmunir krefjist lengri varðveislu (t.d. vegna viðskiptasambands).

5. Þjónustuveitendur / þriðju aðilar
Síðan er hýst hjá Squarespace, Inc. Squarespace kann að vinna tæknileg gögn (t.d. IP-tölu, tegund vafra) sjálfkrafa vegna reksturs og öryggis vefsins. Nánar má lesa í persónuverndarstefnu Squarespace: squarespace.com/privacy.

6. Kökur (cookies)
Síðan notar Squarespace Analytics til að greina umferð á síðunni. Þessar kökur eru ekki notaðar til markaðssetningar. Þú getur stjórnað samþykki í kökuborða síðunnar.

7. Réttindi þín
Þú átt rétt á aðgangi að, leiðréttingu og eyðingu persónuupplýsinga sem varða þig, auk réttar til að andmæla vinnslu. Fyrirspurnir sendist á julia@sighvats.is.

8. Kvörtun
Ef þú telur vinnslu ekki í samræmi við lög má senda kvörtun til Persónuverndar (personuvernd.is).